Skilmálar
Með því að bóka þjónustu Barþjóns samþykkir bókari eftirfarandi skilmála.
Ábyrgð á áfengi: Sá einstaklingur sem bókar þjónustuna og annast kaup á áfengi ber fulla ábyrgð á áfenginu og notkun þess á viðburðinum. Barþjónninn sér um að blanda og bera fram drykki samkvæmt pöntun, en ábyrgð á áfengiskaupum og meðferð áfengis liggur alfarið hjá bókara.
Aldur gesta: Bókari ber ábyrgð á því að áfengi sé ekki veitt einstaklingum undir lögaldri (20 ára). Barþjónn áskilur sér rétt til að neita að bera fram áfengi til einstaklinga sem geta ekki sýnt fram á aldur eða sýna merki um ofneyslu.
Upplýsingagjöf bókara: Bókari ber ábyrgð á að veita réttar og fullnægjandi upplýsingar við bókun, þ.m.t. dagsetningu, tíma, staðsetningu, fjölda gesta og óskir um drykki.
Aðstaða og aðgengi: Bókari skal tryggja barþjóni greiðan aðgang að viðburðarstað á umsömdum tíma ásamt viðunandi vinnuaðstöðu.
Öryggi á staðnum: Bókari ber ábyrgð á öryggi á viðburðarstað. Barþjónn ber ekki ábyrgð á tjóni, slysum eða atvikum sem verða á viðburðinum.
Lög og reglur: Bókari ábyrgist að viðburðurinn fari fram í samræmi við íslensk lög og reglur, þ.m.t. löggjöf um áfengi.
Þjónusta og verð: Barþjónn leggur til faglega þjónustu ásamt áhöldum, ís, ferskum ávöxtum og skreytingum samkvæmt pöntun. Framboð og endanlegt verð er staðfest áður en greitt er.
Afbókun og endurgreiðsla: Hægt er að afbóka pöntun og fá fulla endurgreiðslu sé afbókað með minnst 48 klukkustunda fyrirvara fyrir umsaminn viðburð. Sé afbókað innan 48 klukkustunda fyrir viðburð er pöntunin ekki endurgreidd. Til að afbóka, hafðu samband við okkur á barthjonniceland@gmail.com með pöntunarnúmeri. Endurgreiðslur fara fram með sömu greiðsluaðferð og notuð var við kaup.