Brúðkaup · barþjónn í brúðkaupsveislu
Barþjónn í brúðkaupið
Á brúðkaupsdaginn eigið þið að vera með gestunum, ekki fyrir aftan barinn. Barþjónninn tekur á móti fólki með fordrykk, blandar kokteila og heldur röðinni gangandi fram á kvöld.

Hvað gerir barþjónn í brúðkaupsveislu?
Flestar brúðkaupsveislur skiptast í þrjá hluta: móttöku þegar gestirnir mæta, borðhald með ræðum og svo dans fram eftir kvöldi. Barþjónninn lagar sig að dagskránni ykkar.
- Fordrykkurinn er tilbúinn þegar fyrstu gestirnir ganga inn
- Kokteilar og aðrir drykkir eftir seðlinum ykkar, líka óáfengir
- Barinn er hreinn og snyrtilegur allt kvöldið
- Gengið er frá barnum þegar vaktinni lýkur

Drykkir í brúðkaup: seðill fyrir alla gesti
Í brúðkaupum er aldursbilið oft breitt, frá börnum upp í langafa og langömmu. Gott er að halda seðlinum stuttum: tveir til þrír kokteilar, það sem þið viljið bjóða að auki, og að minnsta kosti einn óáfengur kokteill sem er jafn vandaður og hinir.
Mörg brúðhjón velja drykk sem er kenndur við þau sjálf. Hann getur ratað á seðilinn þegar við förum yfir drykkina og magnið með ykkur fyrir brúðkaupið.
Drykkirnir, klakinn og vatnið koma frá ykkur. Síróp, ástaraldin-puré, safa og óáfenga mixera má kaupa hjá RentEvent. Sjá líka kokteilaþjónustu.
Hve marga barþjóna þarf í brúðkaup?
Gott er að reikna með einum barþjóni á hverja 35 gesti. Í brúðkaupi mæta flestir gestir á sama tíma og vilja fordrykk strax, svo þar getur borgað sig að hafa fleiri í byrjun.
| 50 gestir | 2 barþjónar |
|---|---|
| 80 gestir | 3 barþjónar |
| 120 gestir | 4 barþjónar |
Fleiri dæmi eru í verðtöflunni.
Dæmi um verð
Tímasetning og uppsetning
Klukkustundirnar sem þið bókið eru tíminn við barinn. Viljið þið að barþjónninn mæti fyrr og stilli upp barnum áður en gestirnir koma? Það er gert eftir samkomulagi og reiknast sem tími.
Dragist veislan á langinn má framlengja vaktina. Þá reiknast hver byrjuð hálf klukkustund.
Glös og bjórdæla í brúðkaupið
Kokteilaglös, vínglös og bjórglös fást leigð hjá RentEvent og þið skilið þeim óþvegnum. Eigi bjór að vera á dælu hentar bjórdælan vel. Sjá glös til leigu.
Annan búnað fyrir brúðkaupið finnið þið á brúðkaupssíðu RentEvent.
Umsögn á Google
Frá hjónum sem héldu veislu
„Strákarnir frá RentEvent stóðu sig frábærlega á barnum í veislu sem við hjónin vorum að halda. Þetta var breytt aldursbil gesta í veislunni en allir töluðu um hvað barþjónarnir voru flottir og kurteisir. Við gefum þeim 100% meðmæli.“
Algengar spurningar
Spurningar um barþjón í brúðkaup
Hvað kostar barþjónn í brúðkaup?
8.990 kr. á klukkustund á hvern barþjón, með VSK. Tveir barþjónar í fimm klukkustundir kosta til dæmis 89.900 kr.
Hvenær á barþjónninn að mæta?
Það fer eftir dagskránni. Oftast er best að barinn sé tilbúinn þegar fyrstu gestirnir mæta. Uppsetning fyrir þann tíma er eftir samkomulagi og reiknast sem tími.
Getur barþjónninn gert óáfenga kokteila í brúðkaupinu?
Já. Barþjónarnir blanda óáfenga kokteila jafnt sem aðra og það er sjálfsagt að hafa þá á seðlinum.
Hvað þurfum við að útvega?
Drykki, klaka, vatn og borð undir barinn. Barþjónninn sér um verkfærin.
Hvað ef brúðkaupið er utan höfuðborgarsvæðisins?
Við þjónum höfuðborgarsvæðinu. Sé veislan lengra frá, hafðu samband og við skoðum málið.
Er brúðkaupsdagurinn ákveðinn?
Bókaðu barþjón á rentevent.is eða sendu okkur gestafjölda og dagskrá og við förum yfir málið með ykkur. Hringja: 778 8817