Spurt og svarað
Algengar spurningar um barþjóna
Hér eru svör við því sem fólk spyr oftast um áður en það bókar barþjón. Finnurðu ekki svarið? Hringdu í 778 8817 eða sendu póst á [email protected].
01
Bókun og verð
Hvað kostar barþjónn?
Klukkustundin kostar 8.990 kr. með VSK fyrir hvern barþjón. Sjá verðtöflu.
Er lágmarksbókun?
Já, tvær klukkustundir. Það gerir 17.980 kr. fyrir einn barþjón.
Hvernig bóka ég?
Þú bókar og greiðir á rentevent.is. Bókunin er staðfest um leið og við höfum samband innan sólarhrings.
Get ég bókað samdægurs?
Hringdu fyrst í 778 8817 og við athugum hvort barþjónn sé laus.
Hvernig er framlenging reiknuð?
Á hverja byrjaða hálfa klukkustund.
Geta fyrirtæki fengið reikning?
Já, reikning á kennitölu. Sendu fyrirspurn og taktu það fram. Sjá barþjóna fyrir fyrirtæki.
02
Barþjónninn
Hvaða reynslu hafa barþjónarnir?
Allir hafa staðið minnst tvö ár á bar og flestir hafa verið yfirbarþjónar.
Hvað kemur barþjónninn með?
Hristara, mæli (jigger), sigti og barskeið.
Hvað gerir barþjónninn á vaktinni?
Blandar kokteila, líka óáfenga, hellir, þjónar gestunum og heldur barnum snyrtilegum. Í lok vaktar gengur hann frá barnum.
Hve marga barþjóna þarf ég?
Einn á hverja 35 gesti. Fleiri ef margir mæta í einu.
Hvað ef barþjónninn forfallast?
Við sendum annan barþjón í staðinn. Gangi það ekki upp færðu allt endurgreitt.
Má barþjónninn neita að afgreiða?
Já. Hann má neita ölvuðum gestum og gestum undir 20 ára aldri um afgreiðslu.
03
Drykkir og búnaður
Hvað þarf ég að útvega?
Drykkina, klaka, aðgang að vatni og borð eða aðstöðu fyrir barinn.
Leigið þið út barborð?
Nei. Þú útvegar borð eða aðra aðstöðu fyrir barinn.
Er farið yfir drykkjaseðilinn?
Já. Við förum yfir seðilinn og magnið með þér fyrir veisluna.
04
Svæði og samband
Hvar starfið þið?
Á höfuðborgarsvæðinu: í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi. Lengra eftir samkomulagi, hafðu samband.
Hvenær get ég náð í ykkur?
Það er opið alla daga kl. 08–22 í síma 778 8817. Netfangið er [email protected].
Fannstu svarið?
Bókaðu barþjón á rentevent.is eða sendu okkur spurninguna sem vantaði. Hringja: 778 8817