Barþjónn verð
Hvað kostar barþjónn?
Barþjónn kostar 8.990 kr. á klukkustund, með VSK. Lágmarkið er tvær klukkustundir. Verðið er á klukkustund og það er enginn pakki sem þú þarft að kaupa.
Verðtafla: barþjónn verð eftir tíma og fjölda
Svona reiknast verðið fyrir einn til þrjá barþjóna í tvær til sex klukkustundir. Öll verð eru með VSK.
| Tími | 1 barþjónn | 2 barþjónar | 3 barþjónar |
|---|---|---|---|
| 2 klst. | 17.980 kr. | 35.960 kr. | 53.940 kr. |
| 3 klst. | 26.970 kr. | 53.940 kr. | 80.910 kr. |
| 4 klst. | 35.960 kr. | 71.920 kr. | 107.880 kr. |
| 5 klst. | 44.950 kr. | 89.900 kr. | 134.850 kr. |
| 6 klst. | 53.940 kr. | 107.880 kr. | 161.820 kr. |
Lengri vakt? Hver klukkustund kostar það sama, 8.990 kr. á barþjón.
Reiknaðu verðið fyrir þína veislu
Sláðu inn fjölda gesta og hve marga tíma barinn verður opinn. Reiknirinn stingur upp á fjölda barþjóna út frá einum á hverja 35 gesti.
Hvað hefur áhrif á verðið?
- Gestafjöldinn. Reiknaðu með einum barþjóni á hverja 35 gesti. Ef margir koma á sama tíma, til dæmis í móttöku, getur borgað sig að bæta einum við.
- Tíminn við barinn. Þú greiðir fyrir tímann sem barþjónninn stendur vaktina, minnst tvær klukkustundir.
- Framlenging. Dragist veislan á langinn reiknast hver byrjuð hálf klukkustund.
- Uppsetning. Viltu að barþjónninn mæti fyrr og stilli upp barnum? Það er gert eftir samkomulagi og reiknast sem tími.
Innifalið í verðinu
Innifalið
- Reyndur barþjónn, minnst tvö ár á bar
- Hristari, mælir, sigti og barskeið
- Yfirferð á drykkjaseðli og magni
- Frágangur á barnum í lok vaktar
- Virðisaukaskattur
Ekki innifalið
- Drykkirnir
- Klaki
- Aðgangur að vatni
- Borð eða aðstaða fyrir barinn
Verð á glösum og búnaði
Leiguverð á dag, með VSK.
| Bjórglas 38 cl | 190 kr. glasið |
|---|---|
| Vínglas 49 cl | 349 kr. glasið |
| Kokteilaglas 27 cl | 249 kr. glasið |
| Highball-glas 34 cl | 190 kr. glasið |
| Lowball-glas 33 cl | 190 kr. glasið |
| Kokteilasett | 2.990 kr. |
| Bjórdæla | 14.990 kr. |
Glösunum er skilað óþvegnum og uppvaskið er innifalið. Flutningur til þín og til baka kostar ekkert á höfuðborgarsvæðinu þegar pöntunin fer yfir 10.000 kr. Nánar um glasaleigu og bjórdæluna.
Algengar spurningar
Spurningar um verð
Hvað kostar barþjónn í tvær klukkustundir?
17.980 kr. með VSK. Það er lágmarksbókun fyrir einn barþjón.
Er verðið með virðisaukaskatti?
Já. Öll verð á þessum vef eru með VSK.
Hvernig er framlenging reiknuð?
Ef barinn á að vera opinn lengur en bókað var reiknast hver byrjuð hálf klukkustund á hvern barþjón.
Kostar aukalega að láta barþjóninn setja upp barinn?
Uppsetning fyrir veisluna er eftir samkomulagi og reiknast sem tími, á sama verði og vaktin við barinn.
Geta fyrirtæki fengið reikning?
Já, reikning á kennitölu. Sendu fyrirspurn og taktu það fram. Sjá nánar um barþjóna fyrir fyrirtæki.
Komið að því að bóka?
Þú sérð verðið áður en þú greiðir á rentevent.is. Fyrir stærri viðburði getur þú sent fyrirspurn. Hringja: 778 8817